Icelandic
Birt: 2020-03-03 10:18:01 CET
Heimstaden hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Heimavellir hf.: - Stækkun á skuldabréfaflokkunum HEIMA071225 og HEIMA071248 - LEIÐRÉTTING

Leiðrétt tilboðsfjárhæð í HEIMA071248 er 1.740 m.kr á ávöxtunarkröfunni 3,10%

Heimavellir hf. lauk í gær, 2. mars 2020, stækkun á skuldabréfaflokkunum HEIMA071225 og HEIMA071248. Alls voru gefin út skuldabréf í flokkunum fyrir 3.060 m.kr á 2,99% veginni meðal ávöxtunarkröfu.

Gefin voru út skuldabréf í flokknum HEIMA071225 að nafnvirði 1.320 milljónir króna og seld á ávöxtunarkröfunni 2,85%. Heildarstærð flokksins verður 4.660 milljónir króna, að nafnvirði, eftir stækkunina.

Gefin voru út skuldabréf í flokknum HEIMA071248 að nafnvirði 1.740 milljónir króna og seld á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Heildarstærð flokksins verður 6.000 milljónir króna, að nafnvirði, eftir stækkunina.

Með útgáfu í ofangreindum flokkum munu Heimavellir endurfjármagna núverandi skuldir félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn HEIMA071225 ber 3,20% fasta verðtryggða vexti, með greiðsluferil afborgana sem fylgir 30 ára greiðsluferli. Skuldabréfaflokkurinn HEIMA071248 ber 3,65% fasta verðtryggðra vexti og er jafngreiðslubréf til 30 ára. Báðir flokkarnir eru veðtryggðir með sama tryggingafyrirkomulagi.

Markaðsviðskipti Arion banki hf. höfðu umsjón með sölunni.


Nánari upplýsingar veita:

Arnar Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimavalla hf. – gauti@heimavellir.is. – s: 860 5300

Hrafn Steinarsson, sérfræðingur í Markaðsviðskiptum Arion banka hf. – hrafn.steinarsson@arionbanki.is  - s: 444 6910 / 856 6910