English Icelandic
Birt: 2020-02-20 17:36:12 CET
Eimskipafélag Íslands hf.
Reikningsskil

Eimskip birtir ársreikning 2019 og uppgjör fjórða ársfjórðungs

Kynningarfundur 28. febrúar 2020

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2019 og uppgjör fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. febrúar 2020.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri mun kynna uppgjör ársins 2019 og fjórðungsins.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 28. febrúar 2020 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir,  markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is