Icelandic
Birt: 2020-02-20 13:22:12 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu í skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 19. febrúar 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 21. febrúar 2020.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 3.020.000.000 á bilinu 1,32% - 1,47%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.840.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,40%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 30.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,40% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.870.000.000.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 56.767.152.565.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is