English Icelandic
Birt: 2020-02-12 16:21:51 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Skuldabréfaútgáfa í evrum

Landsbankinn hf. hefur í dag lokið sölu á nýjum 4,25 ára skuldabréfaflokki að fjárhæð 300 milljónir evra með lokagjalddaga í maí 2024 og bera skuldabréfin fasta 0,50% vexti. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 83 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Heildareftirspurn nam yfir 800 milljónum evra frá meira en níutíu fjárfestum. Skuldabréfin voru seld til stofnanafjárfesta í Bretlandi, meginlandi Evrópu og Norðurlöndum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 20. febrúar 2020.

Umsjónaraðilar sölunnar voru Barclays, BofA Securities og J.P. Morgan.