Icelandic
Birt: 2020-02-03 15:59:44 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

LEIÐRÉTT: Viðskiptayfirlit janúar 2020 – Nasdaq Iceland

Við biðjumst velvirðingar á vitlausum dagsetningum sem birtust í fyrri tilkynningu um viðskiptayfirlit fyrir janúar. Hér kemur tilkynning með réttum mánuðum og dagsetningum. 

Reykjavík, mánudagur, 3. febrúar, 2020 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir janúar 2020 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

  • Úrvalsvísitalan (OMXI10) lækkaði um 2,5% í janúar og stendur nú í 2.067 stigum.
  • Heildarviðskipti með hlutabréf í  janúar námu 71,3 milljörðum eða 3.240 milljónum á dag. Það er 29% hækkun frá fyrri mánuði, en í desember í fyrra námu viðskipti með hlutabréf 2.514 milljónum á dag. Þetta er 71,5% hækkun á milli ára (viðskipti í janúar 2019 námu 1.889 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MAREL) 12,5 milljarðar, Arion banka (ARION) 8,3 milljarðar, Festi (FESTI) 7,8 milljarðar, Vátryggingafélag Íslands (VÍS) 7,1 milljarður og Reginn (REGINN) 5,0 milljarðar.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina í mánuðinum, 23,95%, Íslandsbanki næstur með 20,5% og Landsbankinn þriðji með 16,7%.
  • Í lok janúar voru hlutabréf 24 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.233 milljörðum króna (samanborið við 1.251 milljarð í lok árs 2019).

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 135,8 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 6,2 milljarða veltu á dag. Þetta er 8,4% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í desember námu 6,74 milljörðum á dag) og 10,3% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í janúar 2019 námu 5,6 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 90,1 milljarði og viðskipti með bankabréf námu 28,7 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612 (18,1 milljarður), RIKB 22 1026 (15,9 milljarðar), RIKB 28 1115 (13,2 milljarðar), RIKB 31 0124 (9,4 milljarðar) og RIKS 26 0216 (9,1 milljarður).
  • Á skuldabréfamarkaði var Kvika Banki með mestu hlutdeildina 22,1%, Íslandsbanki með 17%, og Landsbankinn með 15,9%.
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,5% í janúar og stendur í 1.616 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,7% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 1,19%.

               

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá

http://www.nasdaqomxnordic.com/news/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI NASDAQ ICELAND
         Kristín Jóhannsdóttir
         Sími: 868 9836
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com


202001.xlsx