Icelandic
Birt: 2020-01-29 18:49:41 CET
Origo hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Origo hf. - Nýr samningur um viðskiptavakt við Landsbankann

Reykjavík, 29. janúar 2020

Origo hf. og Landsbankinn hf. hafa gert með sér nýjan samning um viðskiptavakt á hlutabréfum Origo hf. sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland.

Tilgangur viðskiptavaktarinnar er að efla viðskipti með hlutabréf Origo í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Landsbankinn hf. skuldbindur sig sem viðskiptavaki til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð á Nasdaq Iceland í hlutabréf Origo hf. að lágmarki 8.000.000 kr. að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er nettó 16.000.000 kr. að markaðsvirði sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskiptavakans sem gengið er að. Sé hámarksmagni dagsins náð, fellur niður skylda viðskiptavakans til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið, þar til gengið hefur verið á tilboð viðskiptavakans á mótlægri hlið og nettó viðskiptamagn er aftur komið undir daglegt hámark. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum mun vera magnveginn auk þess að ákvarðast af 10 daga flökti á verði hlutabréfa Origo hf. eins og það birtist í upplýsingakerfi Bloomberg á hverjum tíma. Sé birt 10 daga flökt minna eða jafnt og 20% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 1%, sé birt 10 daga flökt hærra en 20% en lægra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 2%, að lokum ef birt 10 daga flökt er jafnt og eða hærra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 3%.

Samningurinn tekur gildi frá og með 1. febrúar 2020 og gildir til og með 31. janúar 2021. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.


Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.