English Icelandic
Birt: 2020-01-29 17:05:01 CET
Arion banki hf.
Fjárhagsdagatal

Arion banki birtir ársuppgjör 2019 miðvikudaginn 12. febrúar. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar

Arion banki birtir afkomu fjórða ársfjórðungs og ársins 2019 næstkomandi miðvikudag, 12. febrúar, eftir lokun markaða.

Fjárfestafundur / streymi fyrir markaðsaðila 13. febrúar kl. 8:30

Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila fimmtudaginn 13. febrúar klukkan 8:30 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Eggert Teitsson aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs og Theodór Friðbertsson forstöðumaður fjárfestatengsla munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og verður streymt beint.

Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.

Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland: 800 7520
Svíþjóð: +46 850 558 353 
Bretland: +44 333 300 9031
Bandaríkin: +1 833 823 0587 

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Nánari upplýsingar veita Theodór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, IR@arionbanki.is, s.856 6760 og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs bankans, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.