English Icelandic
Birt: 2020-01-29 13:52:39 CET
Marel hf.
Fjárhagsdagatal

Marel: Ársuppgjör 2019 birt 5. febrúar, fjárfestafundur 6. febrúar 2020

Marel hf. mun birta ársuppgjör 2019 eftir lokun markaðar þann 5. febrúar 2020.

Fundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (Aðgangskóði ef hringt er frá Íslandi: 46320121)
  • NL: +31 20 721 9495
  • UK: +44 33 3300 9270
  • US: +1 833 526 8395

Fjárhagsdagatal

  • Aðalfundur – 18. mars 2020
  • 1F 2020 – 20. apríl 2020
  • 2F 2020 – 22. júlí 2020
  • 3F 2020 – 20. október 2020
  • 4F 2020 – 3. febrúar 2021

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.