Icelandic
Birt: 2020-01-27 20:03:28 CET
Vátryggingafélag Íslands hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

VÍS: Breytingar á viðskiptavakt

Vátryggingafélag Íslands hf. hefur gengið til samninga við Kviku banka hf. (,,Kvika“) um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland („Kauphöll Íslands“). Samningi við Landsbankann hf. um viðskiptavakt hefur verið sagt upp.

Samningurinn kveður á um að Kvika skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af VÍS í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands áður en markaðurinn er opnaður. Tilboðin skulu gilda innann dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Kviku.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða, skal vera að lágmarki kr. 15.000.000 að markaðsvirði, á gengi sem Kvika ákveður í hvert skipti. Kviku er heimilt en ekki skylt að bjóða til kaups og/eða sölu hærri fjárhæðir að markaðsvirði. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða skal vera 1,5%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Kvika skuldbindur sig til að eiga viðskipti með dag hvern skal samsvara kr. 75.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 1. febrúar 2020. Á sama tímapunkti fellur niður viðskiptavakt Landsbankans. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Eftir að þessar breytingar koma til framkvæmda standa því Arion banki hf. og Kvika banki hf. að viðskiptavakt með bréf VÍS.