Icelandic
Birt: 2020-01-13 09:30:00 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 2. viku 2019 keyptu Hagar hf. 579.687 eigin hluti fyrir kr. 27.814.013 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
06.01.2020 12:30 47.000 45,50 2.138.500 19.235.230
10.01.2020 11:25 532.687 48,20 25.675.513 19.767.917
Samtals 579.687 27.814.013

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 4. nóvember 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 31. október 2019.

Hagar hafa keypt samtals 7.782.484 hluti í félaginu sem samsvarar 7,12% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 339.982.616 sem samsvarar 68,00% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,63% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 109.347.951 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.