English Icelandic
Birt: 2019-12-30 16:40:19 CET
Arion banki hf.
Innherjaupplýsingar

Kostnaður við breytingar hjá Valitor til að snúa við taprekstri áætlaður um 600 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2019

Stjórn Valitor, dótturfélag Arion banka, hefur ákveðið að ráðast í endurskipulagningu á félaginu til að styrkja kjarnastarfsemi þess og snúa við taprekstri. Kostnaður við breytingarnar er áætlaður 600 milljónir króna og verður bókfærður í uppgjöri Arion banka samstæðunnar fyrir 4. ársfjórðung 2019. Gert er ráð fyrir að þessar aðgerðir Valitor breyti afkomu félagsins úr tapi yfir í rekstrarhagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði (e. EBITDA). Valitor mun greina nánar frá inntaki fyrirhugaðra breytinga innan tveggja vikna.

Fjárfestingar Valitor í alþjóðlegri starfsemi hafa verið umtalsverðar á undanförnum árum. Þessar fjárfestingar hafa skilað tekjuvexti, en sala á alrásarlausnum (e. omni-channel solutions), vörulínu fyrir evrópsk stórfyrirtæki, hefur ekki staðið undir væntingum. Þar munar mest um 6 milljarða króna fjárfestingu í alrásarlausnum á tímabilinu frá árinu 2014, en bókfærð óefnisleg eign af þessum fjárfestingum nemur nú um 4,5  milljörðum króna. Hins vegar nema ætlaðar tekjur af lausninni eingöngu um 1,1 milljarði króna árið 2019. Áætlað er að draga verulega úr áframhaldandi fjárfestingum á þessu sviði.

Með framangreindum skipulagsbreytingum mun draga verulega úr fjárfestingaþörf og rekstrarkostnaði sem mun hafa jákvæð áhrif á afkomu félagsins og þar með Arion banka. Valitor verður eftir sem áður fjárhagslega sterkt, alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu á sviði færsluhirðingar, greiðslugátta og útgáfu.

Valitor er skilgreint sem eign til sölu í bókum Arion banka og verður áfram í virku söluferli.

Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s: 444 6760

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik.