Icelandic
Birt: 2019-12-15 21:23:01 CET
Hagar hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar á framkvæmdastjórn Haga

Steingrímur H. Pétursson, framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar Haga, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Jafnframt hefur Steingrímur ráðið sig til starfa erlendis. Steingrímur mun hefja störf erlendis á nýju ári, en mun sinna verkefnum fyrir félagið þangað til.