English Icelandic
Birt: 2019-12-10 15:51:45 CET
Eimskipafélag Íslands hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

EIM: Upplýsingar vegna kröfu fyrrverandi forstjóra

Vísað er til fréttar frá 19. maí sl. um kröfu Gylfa Sigfússonar, fyrrverandi forstjóra, að rannsókn Héraðssaksóknara á hendur honum verði hætt.

Í dag úrskurðaði héraðsdómur í afmörkuðum þætti málsins þar sem hann gerði kröfu um að Héraðssaksóknari legði fram tiltekin gögn, að tiltekin vitni myndu gefa skýrslu fyrir dómi og að Héraðssaksóknara yrði synjað um að leggja fram umsögn Samkeppniseftirlitsins.

Héraðsdómur hafnaði öllum kröfunum í þessum afmarkaða þætti málsins.

Gylfi mun vísa þessari niðurstöðu til Landsréttar.