Icelandic
Birt: 2019-11-25 12:12:07 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 47. viku 2019 keyptu Hagar hf. 1.598.061 eigin hluti fyrir kr. 68.431.339 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
18.11.2019 15:11 532.687 43,50 23.171.885 15.459.421
19.11.2019 10:26 400.000 42,50 17.000.000 15.859.421
19.11.2019 11:08 50.000 42,25 2.112.500 15.909.421
19.11.2019 11:08 82.687 42,10 3.481.123 15.992.108
22.11.2019 10:32 532.687 42,55 22.665.832 16.524.795
Samtals 1.598.061 68.431.339

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 4. nóvember 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 31. október 2019.

Hagar hafa keypt samtals 4.539.362 hluti í félaginu sem samsvarar 4,15% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 196.628.792 sem samsvarar 39,33% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,36% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 109.347.951 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.