Icelandic
Birt: 2019-11-22 16:45:00 CET
Hagar hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Hagar endurnýja samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt

Hagar hf. hafa í dag endurnýjað samning við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Högum í Kauphöll Íslands NASDAQ OMX Iceland. Eldri samningur er frá árinu 2016.

Samningurinn kveður á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal að lágmarki nema kr. 300.000 að nafnvirði á gengi sem Íslandsbanki ákveður hverju sinni. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum Íslandsbanka skal ekki vera meiri en 2,5%.

Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða felld niður af hálfu Íslandsbanka. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Íslandsbanka er skylt að eiga dag hvern samkvæmt samningnum er kr. 75.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn er ótímabundinn og gildir frá og með 25. nóvember 2019. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.