English Icelandic
Birt: 2019-11-21 10:29:19 CET
Skel fjárfestingafélag hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Skeljungur hf.: Nýtt skipurit og ráðning framkvæmdastjóra fjármálasviðs


NÝTT SKIPURIT

Stjórn Skeljungs hf. ákvað í dag að breyta skipuriti félagsins, að tillögu forstjóra. Helstu breytingarnar eru þær að sölusviði fyrirtækisins hefur verið skipt upp í tvö svið, fyrirtækjasvið og einstaklingssvið. Þórður Guðjónsson mun áfram leiða fyrirtækjasviðið en Árni Pétur Jónsson, forstjóri, mun leiða einstaklingssvið Skeljungs. Þá mun Gróa Björg Baldvinsdóttir, yfirlögfræðingur Skeljungs, taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Már Erlingsson mun áfram stýra rekstrarsviði auk þess að gegna hlutverki aðstoðarforstjóra Skeljungs hf. Fjármálasvið mun verða leitt af nýjum liðsmanni, Ólafi Þór Jóhannessyni,  sem hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri þess sviðs. Undir það svið mun heyra  mannauðs- og skrifstofumál, upplýsingatækni og bókhald. Ekki verður lengur starfrækt sérstakt skrifstofu- og samskiptasvið og færast markaðsmál til einstaklingssviðs, sem líkt og áður sagði er stýrt af forstjóra félagsins.

NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS

Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Skeljungs hf.

Ólafur hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi síðan 2018 og auk þess að sinna stjórnarstörfum í nokkrum félögum. Áður gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs og staðgengils forstjóra Basko ehf. eða frá 2012-2018. Þá var Ólafur framkvæmdastjóri Miðengis ehf., eignarhaldsfélags í eigu Íslandsbanka, frá 2010-2012. Á árunum 2006-2010 gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs Teymis hf. sem var skráð félag í Kauphöll Íslands. Á árunum 1996-2006 starfaði Ólafur á endurskoðunarsviði PricewaterhouseCoopers og varð síðar eigandi. Auk þess sinnti hann kennslu í Háskólanum í Reykjavík við viðskiptadeild háskólans og starfaði fyrir prófnefnd löggiltra endurskoðenda. Ólafur er með Cand.oecon próf í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi.

FRAMKVÆMDASTJÓRN SKELJUNGS

  • Árni Pétur Jónsson, forstjóri
  • Gróa Björg Baldvinsdóttir, yfirlögfræðingur
  • Már Erlingsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og aðstoðarforstjóri
  • Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
  • Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs:

„Með hinu breytta skipuriti er verið að aðskilja sölu til fyrirtækja og einstaklinga. Í því felst að við ætlum að leggja aukna áherslu á vörumerkið Orkuna. Orkan var fyrsta lággjalda vörumerkið fyrir eldsneytissölu til einstaklinga hér á landi. Það er mat mitt að þar á félagið inni tækifæri til að styrkja stöðu sína á eldsneytismarkaðinum.

Það er mikill fengur fyrir Skeljung að fá Ólaf Þór til liðs við félagið. Ég tel að hans mikla reynsla muni nýtast vel í þeim verkefnum sem eru framundan hjá okkur. Ólafur er löggiltur endurskoðandi og hefur áður stýrt fjármálasviði félags sem skráð var í Kauphöllina. Ég tel Ólaf mikilvægan liðsmann í framkvæmdastjórn félagsins.

Sú ákvörðun að fjölga í framkvæmdastjórninni, úr fjórum í fimm aðila, gefur okkur meiri breidd en áður.  Gróa Björg hefur starfað hjá Skeljungi í tæp 3 ár og sýnt að hún er mjög fær stjórnandi.  Hún kemur því inn í framkvæmdastjórnina með sína þekkingu og reynslu.  Það er styrkleiki fyrir félagið, og tímabært, að við fáum öflugan kvenkyns stjórnanda inn í stjórnendateymið.

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, í gegnum netfangið fjarfestar@skeljungur.is

Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/

Viðhengi


Skeljungur skipurit og framkvmdastjorn 2019.pdf