Icelandic
Birt: 2019-11-18 10:48:10 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 46. viku 2019 keyptu Hagar hf. 1.605.506 eigin hluti fyrir kr. 69.660.143 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
12.11.2019 10:44 7.445 44,45 330.930 13.328.673
13.11.2019 14:49 532.687 43,50 23.171.885 13.861.360
14.11.2019 09:46 532.687 42,65 22.719.101 14.394.047
15.11.2019 15:12 532.687 44,00 23.438.228 14.926.734
Samtals 1.605.506 69.660.143

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 4. nóvember 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 31. október 2019.

Hagar hafa keypt samtals 2.941.301 hluti í félaginu sem samsvarar 2,69% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 128.197.453 sem samsvarar 25,64% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,23% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 109.347.951 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.