English Icelandic
Birt: 2019-11-12 13:21:43 CET
Landsvirkjun
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Moody‘s hækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar

Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Lánshæfiseinkunn án ríkisábyrgðar hækkar í Baa1 úr Baa2 og með ríkisábyrgð í A3 úr Baa1. Horfur eru  metnar stöðugar.

Að mati Moody‘s endurspeglar hækkun á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar án ríkisábyrgðar stöðuga styrkingu á fjárhagsstöðu fyrirtækisins, þar á meðal áframhaldandi lækkun skulda og minni markaðsáhættu. Grunneinkunn Landsvirkjunar hækkar, en hún gefur til kynna fjárhagslegan styrk fyrirtækisins án stuðnings frá eiganda.

Reykjavík, 12. nóvember 2019

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Sími 515 9000, netfang: rafnar@landsvirkjun.is