Icelandic
Birt: 2019-10-31 18:08:28 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 7. júní 2019 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli sömu ákvæða.

Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 4. nóvember nk. Endurkaupin munu að hámarki nema 109.347.951 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Félagið á í dag 11.985.433 eigin hluti. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, hvort sem fyrr verður, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Arctica Finance hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 532.687 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland í október 2019. Endurgjald fyrir keypta hluti skal vera jafnt hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í hlutabréf félagsins sem liggur inni í Kauphöllinni þegar kauptilboðið er sett fram.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu Haga hf.., í síma 530-5500.