Icelandic
Birt: 2019-10-15 18:30:00 CEST
Hagar hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Hagar hf. selja skuldabréf til fjárfesta að nafnverði 2.500.000.000.- kr.

Hagar hf. hafa tekið tilboði fjárfesta í skuldabréf í nýjum óverðtryggðum flokki, HAGA 181021, en tilboðin bárust í framhaldi af lokuðu útboði félagsins þann 30. september sl. þar sem Hagar höfnuðu öllum tilboðum í óverðtryggðan flokk skuldabréfa. Óskað verður eftir að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland innan 6 mánaða.

Samtals bárust tilboð að nafnvirði 2.500.000.000.- kr. á genginu 1,0. Bréfin bera fasta 4,65% óverðtryggða vexti. Skuldabréfaflokkurinn er tryggður með veði í þróunareignum Haga. Hann er til 2 ára með einum gjalddaga höfuðstóls þann 18.10.2021. Vextir greiðast á 3 mánaða fresti. Gjalddagi og afhending bréfa er 18. október nk.

Arctica Finance hafði umsjón með viðskiptunum fyrir hönd Haga.

Nánari upplýsingar veita Steingrímur H. Pétursson, framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar Haga, á netfanginu shp@hagar.is og í síma: 846 4000 eða Jón Þór Sigurvinsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance, á netfanginu jons@arctica.is og í síma: 895 9242