Icelandic
Birt: 2019-09-26 17:51:10 CEST
Brim hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Ákvörðun um endurkaupaáætlun Brim hf.

Stjórn Brims hf. hefur á grundvelli heimildar sem samþykkt var á aðalfundi Brims hf. þann 29. mars 2019 tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að standa við mögulegar skuldbindingar sem leiða af skuldatengdum fjármálagerningum sem eru skiptanlegir í hlutabréf.      

Heimild er til að kaupa hlutabréf í félaginu, fram að næsta aðalfundi, að hámarki 50.000.000 hluti, eða um 2,7% af útgefnum hlutum, á kaupverði, sem má þó ekki fara yfir kr. 1.900.000.000,- að markaðsvirði, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess megi einungis eiga mest 10% hlutafjár þess. Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist þriðjudaginn 1. október 2019 og mun áætlunin vera í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Verð fyrir hvern hlut skal ekki vera hærra en hæsta gengi af eftirfarandi; lokagengi síðasta viðskiptadags, síðustu óháðu viðskipta eða í hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 2.670.053 hlutir sem var fjórðungur af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í ágúst 2019.

Endurkaupaáætlun verður framkvæmd af Íslandsbanka sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri