English Icelandic
Birt: 2019-09-26 11:03:13 CEST
Arion banki hf.
Innherjaupplýsingar

Arion banki: Hagræðing og skipulagsbreytingar sem munu hafa jákvæð áhrif á afkomu bankans

Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Skipulagsbreytingarnar eru liður í vegferð bankans að settum markmiðum um 50% kostnaðarhlutfall og  arðsemi eiginfjár umfram 10%. Sviðum bankans fækkar um tvö og ýmis verkefni færast til innan bankans með það að markmiði að einfalda starfsemina. Tekjusvið Arion banka verða þrjú: viðskiptabankasvið, fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið og markaðir. Stoðsvið verða einnig þrjú: fjármálasvið, upplýsingatæknisvið og áhættustýring.

Markmið breytinganna er að styrkja samkeppnishæfni bankans og auka arðsemi eiginfjár. Grunnstefna bankans er óbreytt og mun Arion banki áfram veita alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta og vera í fararbroddi um stafræna bankaþjónustu. Megin breytingin felst í að starfsemi fjárfestingabankasviðs færist á tvö ný svið, annars vegar markaði og hins vegar fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið. Markaðir munu hafa það hlutverk að skerpa áherslur bankans á sviði verðbréfastarfsemi en fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið mun veita fyrirtækjum og stofnunum heildstæða þjónustu varðandi fjármögnun og ráðgjöf. Bankinn mun efla þjónustu við þá sem leita að sem hagkvæmastri fjármögnun m.a. með milligöngu um fjármögnun frá þriðja aðila, svo sem sjóðum og öðrum stofnanafjárfestum.

Starfsfólki bankans mun við þessar breytingar fækka um 12% eða um eitt hundrað. Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þessu.

Kostnaður vegna starfsloka verður gjaldfærður að fullu á þriðja ársfjórðungi og nemur hann tæpum 900 milljónum króna. Eftir skatta nema áhrif aðgerðanna um 650 milljónum króna á afkomu þriðja ársfjórðungs. Áætlað er að breytingarnar muni að öðru óbreyttu hafa jákvæð áhrif á afkomu bankans sem nemur um 1,3 milljörðum króna á ársgrundvelli, að teknu tilliti til skatta. Jákvæðra áhrifa mun fyrst gæta í afkomu fjórða ársfjórðungs 2019.  

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Sterk eiginfjár- og lausafjárstaða Arion banka felur í sér að bankinn stendur afar traustum fótum. Hins vegar er ljóst að rekstrarkostnaður er of hár og skipulag bankans tekur ekki nægjanlega vel mið af núverandi markaðsaðstæðum og þörfum atvinnulífsins. Umhverfi fjármálafyrirtækja hefur breyst mikið á undanförnum árum. Íþyngjandi breytingar á regluverki og sköttum á síðastliðnum áratug hafa leitt af sér mikinn viðbótarkostnað. Það er staðreynd að eiginfjárkröfur og skattar á banka hér á landi eru langt umfram það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur og skerða samkeppnisstöðu þeirra. Jafnframt er samkeppni á fjármálamarkaði að aukast til mikilla muna, t.a.m. frá lífeyrissjóðum, ríkisbönkum, fjártæknifyrirtækjum og minni fjármálafyrirtækjum sem lúta um margt öðrum lögmálum en kerfislega mikilvægir bankar. Vegna þessa hefur arðsemi bankans nú um nokkurt skeið ekki verið nægjanlega góð.

Með þeim skipulagsbreytingum sem við kynnum í dag erum við að bregðast við aðstæðum til að tryggja að bankinn þjóni sínum viðskiptavinum vel á sama tíma og hann skilar hluthöfum arði. Við byggjum á þeim mikla árangri sem hefur náðst á undanförnum árum á sviði stafrænnar þjónustu og sjálfvirknivæðingar og ætlum okkur áframhaldandi forystuhlutverk í framsækinni fjármálaþjónustu.

Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að  muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.“

Framkvæmdastjórn

Eftirfarandi skipa framkvæmdastjórn Arion banka: Benedikt Gíslason, bankastjóri, Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri markaða, Gísli S. Óttarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, og Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Staða framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs verður auglýst laus til umsóknar.

Úr framkvæmdastjórn stíga Lýður Þór Þorgeirsson og Rúnar Magni Jónsson en báðir taka við nýjum stöðum innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs. Lýður Þór mun taka við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og Rúnar Magni við starfi forstöðumanns á sviði fjármögnunar fyrirtækja. Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Arion banka og mun stýra lögfræðiráðgjöf á skrifstofu bankastjóra.

Meðfylgjandi er nýtt skipurit Arion banka.


Nánari upplýsingar veita Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108, og Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s: 444 6760.

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik.

Viðhengi


Skipurit Arion banka.pdf