Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 36. viku 2019 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 18.680.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti | 06/09/2019 | 10:58 | 4.000.000 | 4,670 | 18.680.000 | 373.319.193 | | | 4.000.000 | | 18.680.000 | 373.319.193 | Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. júní 2019. Síminn átti 369.319.193 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 373.319.193 eða sem nemur 4,04% af útgefnum hlutum í félaginu. Síminn hefur keypt samtals 156.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,69% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 710.920.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is
|