Icelandic
Birt: 2019-09-02 11:01:59 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 35. viku 2019 keyptu Hagar hf. 1.465.990 eigin hluti fyrir kr. 58.016.554 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
26.8.2019 11:04 732.995 40,10 29.393.100 10.347.910
29.8.2019 09:55 732.995 39,05 28.623.455 11.080.905
Samtals 1.465.990 58.016.554

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. júní 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. júní 2019.

Hagar hafa keypt samtals 11.080.905 hluti í félaginu sem samsvarar 9,13% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 463.620.807 sem samsvarar 92,72% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,91% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 121.333.384 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.