Icelandic
Birt: 2019-08-28 15:00:28 CEST
Landsbréf hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.

Árshlutauppgjör Landsbréfa hf. 30. júní 2019

Starfsemi Landsbréfa gekk vel á fyrstu sex mánuðum ársins. Allir verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir Landsbréfa skiluðu jákvæðri ávöxtun á tímabilinu og nam afkoma sjóðanna alls 6.858 milljónum króna. Hagnaður Landsbréfa nam 301 milljónum króna. Eignir í stýringu voru 163 milljarðar króna í lok tímabilsins.

  • Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri hjá félaginu sem rennur til viðskiptavina í formi ávöxtunar nam 6.858 m. kr. á tímabilinu samanborið við 1.879 m. kr. á sama tímabili árið á undan.
  • Hrein eign verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri hjá félaginu í lok júní var 123 ma. kr. samanborið við 109 ma. kr. í lok síðasta árs.
  • Heildar eignir í stýringu í lok júní voru 163 ma. kr. samanborið við 155 ma. kr. í lok síðasta árs.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 912 m. kr.
  • Hagnaður félagsins eftir skatta var 301 m. kr.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa og sjóða félagsins gekk vel á fyrri helmingi ársins. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá góða ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Landsbréfa. Rekstur Landsbréfa sjálfra gekk einnig vel á tímabilinu, en hagnaður á fyrri árshelmingi var rúmar 300 milljónir og eru Landsbréf því að skila Landsbankanum eiganda félagsins góðri arðsemi. “

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Viðhengi


Landsbref hf. arshlutareikningur 30. juni 2019.pdf