Sýn hf.: Breyttar afkomuhorfurUppfærðar horfur fyrir árið 2019 gefa til kynna að EBITDA framlegð ársins verði um 6% undir þeirri spá sem áður hafði verið gefin út, sem var EBITDA á milli 6,0-6,5 ma. á árinu, en er nú um 5,6 ma. Eftir breytingar á framkvæmdastjórn sem áttu sér stað á fyrri helmingi ársins, er búið að vinna að nýju spáferli. Niðurstaða þeirrar vinnu er að fyrri horfur hafi verið of bjartsýnar. Tekjur í fjölmiðlum og í fjarskiptum voru ofáætlaðar um tæpar 400 milljónir og kostnaður við útsendingar miðla vanáætlaður um 160 milljónir. Fyrri áætlun um frjálst sjóðsflæði er óbreytt en ljóst að félagið er að enda í neðri enda þess bils, 1,6-2,0 ma. Framkvæmdastjórn er búin að breyta uppgjörum deilda og skerpa á innri ferlum sem mun skila sér í áreiðanlegri spám héðan í frá. Sömuleiðis hafa aðgerðir sem gripið var til í rekstrinum í sumar lækkað kostnaðarstig fyrirtækisins umtalsvert til framtíðar. Sýn hf. mun birta uppgjör fyrri hluta ársins 28. ágúst og kynning á uppgjöri fer fram í höfuðstöðvum félagsins klukkan 8.30 þann 29. ágúst. Framkvæmdastjórn getur ekki tjáð sig frekar fyrr en eftir birtingu uppgjörs.
|