Icelandic
Birt: 2019-08-19 11:00:00 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 33. viku 2019 keyptu Hagar hf. 2.198.985 eigin hluti fyrir kr. 91.214.680 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
14.8.2019 11:30 500.000 42,0 21.000.000 6.449.980
14.8.2019 11:35 232.995 41,9 9.762.491 6.682.975
15.8.2019 10:20 500.000 41,6 20.800.000 7.182.975
15.8.2019 15:16 232.995 41,2 9.599.394 7.415.970
16.8.2019 10:50 732.995 41,0 30.052.795 8.148.965
Samtals 2.198.985 91.214.680

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. júní 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. júní 2019.

Hagar hafa keypt samtals 8.148.965 hluti í félaginu sem samsvarar 6,72% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 345.778.448 sem samsvarar 69,16% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,67% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 121.333.384 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.