Icelandic
Birt: 2019-08-19 10:00:00 CEST
Síminn hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 33. viku 2019 keypti Síminn hf. 16.000.000 eigin hluti að kaupverði 73.000.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
13.8.201911:214.000.0004,62018.480.000333.319.193
14.8.201911:544.000.0004,57018.280.000337.319.193
15.8.201910:284.000.0004,55518.220.000341.319.193
16.8.201911:134.000.0004,50518.020.000345.319.193
  16.000.000 73.000.000345.319.193

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. júní 2019.

Síminn átti 329.319.193 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 345.319.193 eða sem nemur 3,73% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 128.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,38% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 582.520.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is