Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 32. viku 2019 keypti Síminn hf. 12.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.240.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti | 06/08/2019 | 10:22 | 4.000.000 | 4,550 | 18.200.000 | 321.319.193 | 07/08/2019 | 10:58 | 4.000.000 | 4,520 | 18.080.000 | 325.319.193 | 09/08/2019 | 14:46 | 4.000.000 | 4,490 | 17.960.000 | 329.319.193 | | | 12.000.000 | | 54.240.000 | 329.319.193 | Viðskiptin eru amkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. júní 2019. Síminn átti 317.319.193 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 329.319.193 eða sem nemur 3,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Síminn hefur keypt samtals 112.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,21% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 509.520.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is
|