Icelandic
Birt: 2019-07-29 11:00:00 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 30. viku 2019 keyptu Hagar hf. 732.995 eigin hluti fyrir kr. 31.227.288 eins og hér segir:

Dags.TímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
23.07.201913:57500.00042,6521.325.0004.716.985
23.07.201915:14232.99542,509.902.2884.949.980
Samtals 732.995 31.227.288 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. júní 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. júní 2019.

Hagar hafa nú keypt samtals 4.949.980 hluti í félaginu sem samsvarar 4,08% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 212.313.768 sem samsvarar 42,46% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,41% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 121.333.384 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.