Icelandic
Birt: 2019-07-18 14:32:21 CEST
Brim hf.
Innherjaupplýsingar

HB Grandi - Stjórn leggur til kaup á sölufélögum í Asíu og breytingu á nafni félagsins

Stjórn HB Granda hf. samþykkti á fundi í dag samninga um kaup á sölufélögum í Asíu og að leggja þá fyrir  hluthafafund til samþykktar.  Félagið gerði kauptilboð í félögin að fjárhæð 31,1 milljón evra  sl. föstudag og gekk eigandi þeirra, Útgerðarfélag Reykjavíkur hf., að tilboðinu eins og greint var frá í tilkynningu til kauphallar. Tilgangur kaupanna er að styrkja sölu- og markaðsstarf félagsins á alþjóðamörkuðum, einkum í Asíu.

Jafnframt ákvað stjórn félagsins að leggja til við hluthafafund að breyta nafni og vörumerki félagsins í Brim og Brim Seafood. Nýtt vörumerki og nafn þjóna vel tilgangi félagsins sem er að markaðssetja og selja afurðir, sem félagið veiðir og vinnur, á verðmætum alþjóðamörkuðum. Nafni félagsins var síðast breytt fyrir 15 árum og vísaði þá til sameiningar tveggja félaga, Haraldar Böðvarssonar og Granda, sem áður varð til við sameiningu Ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Breytingarnar að þessu sinni undirstrika aukna áherslu félagsins á markaðs- og sölumál sem birtist m.a. í kaupum á sölufélögunum í Asíu.

Brim kom fyrst til sögunnar árið 2003 sem sjávarútvegsfélag Eimskipafélagsins og átti þá Harald Böðvarsson, Skagstrending og Útgerðarfélag Akureyrar.  Við sameiningu Útgerðarfélags Akureyrar, sem var þá komið í eigu Útgerðarfélagsins Tjalds, við ÚT ári síðar varð Brim nafnið á sameinaðu félagi. Á síðasta ári var nafni Brims breytt í Útgerðarfélag Reykjavíkur sem hefur nú afhent HB Granda nafnið Brim til eignar og afnota.

Brim er einfalt og þjált nafn sem er ásamt vörumerkinu Brim Seafood þekkt á alþjóðamörkuðum fyrir sjávarafurðir. Vörumerkið myndar þrjár öldur. Öldurnar tákna annars vegar brim, sem brýtur nýja leið í viðskiptum, og hins vegar mynda þær fisk, sem er tákn fyrir afurðir fyrirtækisins.  Blái liturinn stendur fyrir lit sjávarins og silfrið táknar þau verðmæti sem Brim skapar. Emil H. Valgeirsson Grafískur hönnuður/FÍT, Hvíta Húsið hannaði merkið. 

Innan skamms verður boðað til hluthafafundar sem verður haldinn um miðjan ágúst.

Frekari upplýsingar veitir Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður HB Granda hf., í síma 618 8272

Viðhengi


Stjorn leggur til kaup a solufelogum i Asiu og breytingu a nafni felagsins.pdf