Icelandic
Birt: 2019-06-28 15:26:19 CEST
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 21. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 925.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar hefur félagið tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 217.319.193 eigin hluti og því munu endurkaupin að hámarki nema 707.680.807 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að fjárhæð endurkaupanna muni að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Fossar markaðir hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 23.556.201 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í maí 2019. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast mánudaginn 1. júlí nk.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is