Icelandic
Birt: 2019-06-04 18:15:00 CEST
Hagar hf.
Boðun hluthafafundar

Aðalfundur Haga hf. - framboð til stjórnar

Aðalfundur Haga hf. verður haldinn föstudaginn 7. júní 2019. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.


Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 2. júní sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins, í stafrófsröð:


1. Björgvin Halldór Björnsson (f. 1982), lögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf.

2. Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Nordic Visitor

3. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Slippsins á Akureyri

4. Erna Gísladóttir (f. 1968), forstjóri og eigandi BL ehf.

5. Guðrún Ólafsdóttir (f. 1968), gæðastjóri VHE ehf.

6. Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962), formaður Viðskiptaráðs Íslands

7. Már Wolfgang Mixa (f. 1965), lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík

8. Stefán Árni Auðólfsson (f. 1972), lögmaður hjá LMB Mandat slf.


Helgi Bjarnason, fjárfestir, sem áður hafði tilkynnt um framboð sitt til tilnefningarnefndar félagsins, hefur dregið framboð sitt til baka. 


Nánari upplýsingar um frambjóðendur má sjá í meðfylgjandi skjali. Tillaga tilnefninganefndar um stjórnarmenn er einnig meðfylgjandi. 


Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Er það mat stjórnar Haga hf. að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum.


Stjórn Haga hf.

Viðhengi


Frambo til stjornar Haga 07.06.19_til birtingar 4 juni.pdf
Skyrsla tilnefninganefndar Haga hf - aalfundur 2019.pdf