Icelandic
Birt: 2019-06-03 13:31:38 CEST
Brim hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

HB Grandi selur ferskfisktogara

HB Grandi hefur selt Engey RE 1 til Murmansk Trawl Fleet í Rússlandi og verður hún afhent nýjum eigendum fyrri hluta júní mánaðar. Í tengslum við þessa sölu verður ísfisktogarinn Helga María AK 16, tekin aftur í rekstur, en henni var lagt í febrúar síðastliðnum. Skipverjum í áhöfn Engeyjar verður boðið pláss á öðrum skipum félagsins. Engey er ferskfisktogari sem var smíðaður í Tyrklandi 2017 og hefur verið gerð út af HB Granda frá því skipið kom til landsins.