English Icelandic
Birt: 2019-05-23 19:29:49 CEST
Eimskipafélag Íslands hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Afkoma af rekstri á fyrsta ársfjórðungi yfir væntingum

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs 2019

  • Tekjur námu 164 milljónum evra og hækkuðu um 8,5 milljónir eða 5,4% frá sama ársfjórðungi 2018
    • Magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,6%, drifið áfram af umtalsverðri aukningu í gámaflutningum sem jukust um 9,0% og hækkuðu tekjur um 5,1 milljón evra eða 5,0%.
    • Magn í flutningsmiðlun jókst um 1,0% en góður gangur var í frystiflutningsmiðlun sem jókst um 8,7%. Tekjur hækkuðu um 3,4 milljónir evra eða 6,2%.
  • Launakostnaður lækkar á milli tímabila en annar rekstrarkostnaður hækkar um 5,3% án áhrifa IFRS 16
    • Laun og launatengd gjöld námu 32,7 milljónum evra samanborið við 33,7 milljónir á sama fjórðungi síðasta árs sem er lækkun um 3%. Á tímabilinu störfuðu að meðaltali um 1.800 starfsmenn hjá félaginu samanborið við um 1.860 starfsmenn á sama tímabili í fyrra. Um síðustu áramót var fjöldi starfsmanna 1.821.
    • Annar rekstrarkostnaður nam 115,8 milljónum evra. Án áhrifa IFRS 16 nam annar rekstrarkostnaður 120,6 milljónum evra samanborið við 114,5 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs sem er hækkun um 6,1 milljón eða 5,3%.
  • EBITDA nam 15,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2019 en 10,6 milljónum án áhrifa IFRS 16 samanborið við 7,3 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs sem er aukning um 47%
    • Helstu ástæður fyrir hækkun í EBITDA framlegð á milli ára eru jákvæður viðsnúningur í afkomu í Noregi,  áframhaldandi vöxtur í Trans-Atlantic flutningum og í frystiflutningsmiðlun, góður gangur í starfseminni á Íslandi og þá eru hagræðingar- og skipulagsaðgerðir byrjaðar að skila sér.
  • Fjárfestingar tímabilsins námu 8,6 milljónum evra, þar af voru nýfjárfestingar 4,8 milljónir. Til samanburðar voru fjárfestingar 13,1 milljón evra og nýfjárfestingar 6,4 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs
  • Handbært fé í lok tímabilsins var 26,7 milljónir evra samanborið við 21,9 milljónir í lok árs 2018 sem er aukning um 4,8 milljónir
  • Á ársfjórðungnum var tap að fjárhæð 2,5 milljónir evra samanborið við 1,6 milljóna tap á sama ársfjórðungi 2018
    • Neikvæð einskiptis skattaleg áhrif að fjárhæð 3,4 milljónir evra hafa áhrif á afkomu ársfjórðungsins. Án þessa einskiptis liðar væri hagnaður 0,9 milljónir evra.
  • Heildareignir námu 519,1 milljón evra og eigið fé 233,3 milljónum
    • Eiginfjárhlutfall var 44,9% á fyrsta ársfjórðungi 2019. Án áhrifa IFRS 16 var eiginfjárhlutfallið 48,1% samanborið við 49,3% á sama ársfjórðungi 2018.
  • Skuldsetningarhlutfall var 2,92 á fyrsta ársfjórðungi 2019 en án áhrifa IFRS 16 var hlutfallið 2,55 samanborið við 2,80 í lok árs 2018 sem er jákvæð þróun á milli tímabila

VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI

„Afkoma af rekstri Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2019 var yfir væntingum og EBITDA niðurstaða fjórðungsins er sú besta á fyrsta ársfjórðungi frá árinu 2009. Ágætis vöxtur var í tekjum og flutningsmagni milli fjórðunga og ánægjulegt að sjá 9% aukningu í magni í gámaflutningum. Jákvæður viðsnúningur var í afkomu félagsins í Noregi þrátt fyrir minna flutningsmagn þar, sem skýrist m.a. af lægri rekstrarkostnaði en félagið rekur nú tveimur færri skip í Noregi miðað við sama tímabil í fyrra. Áframhaldandi vöxtur hefur verið í Trans-Atlantic flutningum og skipti félagið út einu skipi fyrir stærra skip á siglingaleið félagsins til Norður-Ameríku á tímabilinu til að svara aukinni eftirspurn.  Enn fremur var góður vöxtur í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun en afkoma af henni olli nokkrum vonbrigðum á síðasta ári. Góður gangur var í innanlands starfseminni á Íslandi og loks eru hagræðingar- og skipulagsaðgerðir síðustu mánaða byrjaðar að skila sér í batnandi afkomu. Eftir mikinn ytri vöxt síðustu ár hafa verkefni þessa ársfjórðungs m.a. verið að skerpa á áherslum í rekstri og samþætta aðskildar einingar í sömu starfsemi með það að markmiði að auka skilvirkni og arðsemi.

Þrátt fyrir bætta afkomu af rekstri er engu að síður tap eftir skatt á tímabilinu. Þar spilar stærst einskiptis skattaleg gjaldfærsla að fjárhæð 3,4 milljónir evra. Eins og kom fram í tilkynningu í mars síðastliðnum tapaði félagið kærumáli fyrir Yfirskattanefnd. Málið fjallaði um hvort skattleggja skyldi afkomu erlendra eignarhaldsfélaga skipa félagsins í móðurfélaginu á Íslandi samkvæmt svokölluðum CFC reglum. Úrskurður Yfirskattanefndar er félaginu mikil vonbrigði og skekkir enn frekar samkeppnisstöðu kaupskipaútgerðar íslenskra félaga og er á skjön við þá umgjörð sem búin er kaupskipaútgerðum í löndunum í kringum okkur.

Við erum ánægð með að hafa fengið formlegt samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir samstarfi Eimskips og Royal Arctic Line sem er búið að vera í undirbúningi í nokkur ár. Með samstarfinu opnast nýir möguleikar fyrir hagkvæmara siglingakerfi fyrir Eimskip sem og nýjar leiðir í flutningum til og frá Grænlandi með vikulegum siglingum. Þannig skapast tækifæri fyrir okkar viðskiptavini meðal annars til aukinna viðskipta við Grænland. Í tengslum við fyrirhugað samstarf er Eimskip með tvö 2.150 gámaeininga skip í smíðum sem gert er ráð fyrir að verði komin í rekstur undir lok þessa árs. Það er mikilvægur liður í því að endurnýja skipaflota félagsins með umhverfisvænni og hagkvæmari skipum.  

Stjórnendur og starfsfólk munu halda áfram á þeirri vegferð að samþætta og skerpa á áherslum í rekstri með það að markmiði að bæta rekstrarafkomu félagsins.“

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, sími: 525 7202
  • Egill Örn Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sími: 525 7202
  • Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.is

Viðhengi


2019 05 23 - PR Nasdaq - Uppgjor Q1 2019.pdf
Eimskip - Financial Statements Q1 2019.pdf