English Icelandic
Birt: 2019-05-23 18:15:54 CEST
Skel fjárfestingafélag hf.
Boðun hluthafafundar

Skeljungur hf.: Framboð til stjórnar | Krafa um málefni á dagskrá | Hluthafafundur 27. maí 2019

Hluthafafundur verður haldinn hjá Skeljungi hf. mánudaginn 27. maí 2019, kl. 16.00, á skrifstofu félagsins, Borgartúni 26, 8. hæð, 105 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Skeljungs hf. er runninn út.

Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

  • Ata Maria Bærentsen
  • Baldur Már Helgason
  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Jens Meinhard Rasmussen
  • Jón Ásgeir Jóhannesson
  • Kjartan Örn Sigurðsson
  • Sandra Hlíf Ocares
  • Þórarinn Arnar Sævarsson

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi og í skýrslu tilnefningarnefndar á heimasíðu Skeljungs.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn þess skipuð fimm einstaklingum og skal hlutfall hvors kyns innan stjórnar ekki vera lægra en 40%. Náist ekki fullnægjandi hlutföll mun þurfa að kjósa aftur.

Stjórn Skeljungs hf. barst krafa um að beitt verði margfeldiskosningu við kjör stjórnar Skeljungs hf. Krafan barst stjórn innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/10 hlutafjárins, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 (hfl.). Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið á fundinum.

Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu. 

*             *             *

Stjórn Skeljungs barst þann 17. maí krafa frá hluthafa, 365 miðlum hf., um að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundinum, sbr. 1. mgr. 86. gr. hfl. Nánar tiltekið tillögu um hlutafjárlækkun og breytingatillögu sem gengur lengra en samþykktabreytingatillaga stjórnar, þess efnis að endurkaupaheimild verði einungis takmörkuð við 10% hlutafjár. Að fengnu lögfræðiáliti var það niðurstaða stjórnar að vegna eðlis málefnanna hefði ekki verið nægilegur fyrirvari til þess að unnt væri að taka málin á dagskrá komandi hluthafafundar. Hluthafinn var hins vegar hvattur til þess að taka málin upp á fundinum, sbr. 89. gr. hfl., og eftir atvikum óska eftir atkvæðagreiðslu sem yrði þá leiðbeinandi fyrir stjórn. Að öðrum kosti væri hluthafanum unnt að óska eftir nýjum hluthafafundi með beiðni um að framangreind mál yrðu tekin til umfjöllunar.

Bréf 365 miðla hf. er hér meðfylgjandi.

*             *             *

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins.

Frekari upplýsingar veitir Ingunn Agnes Kro, framkvæmdastjóri samskiptasviðs, sími 840-3026, tölvup. fjarfestar@skeljungur.is.

*             *             *

Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, OrkanX og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/

Viðhengi


365 - krafa um malefni a dagskra.pdf
Frambo til stjornar Skeljungs - mai 2019.pdf