English Icelandic
Birt: 2019-05-19 20:56:09 CEST
Eimskipafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

Eimskip: Bréf frá lögmanni Gylfa Sigfússonar vegna rannsóknar Héraðssaksóknara

Eftir lokun markaða á föstudag barst Eimskipafélagi Íslands hf. bréf frá lögmanni Gylfa Sigfússonar fyrrverandi forstjóra félagsins. Tilefni bréfsins er krafa Gylfa um að rannsókn lögreglunnar á kæru Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2014 verði hætt. Samkeppniseftirlitið hefur haft málefni Eimskips samfellt til rannsóknar síðan 2010 eða í rúmlega níu ár.

Krafa Gylfa verður lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun, 20. maí.

Aðalkröfu sína reisir Gylfi á því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi ekki hafist með lögmætum hætti. Rannsókn Héraðssaksóknara sé afleiðing af rannsókn Samkeppniseftirlitsins sem sé slíkur ágalli að hún sé ólögmæt og að hana beri að fella niður.

Jafnframt byggir Gylfi Sigfússon kröfu sína á því að rannsóknin hafi ekki farið fram á lögmætan hátt og að í henni felist brot á stjórnarskrárvörðum mannréttindum. Hún byggi á gögnum sem fengin hafi verið með hótunum um beitingu viðurlaga eftir að hann var kærður. Svo virðist sem Héraðssaksóknari hafi rannsakað atriði sem Gylfi hafi ekki verið kærður fyrir. Þá hafi rannsóknin staðið yfir í mjög langan tíma.

Enn fremur er á það bent í kröfu Gylfa að rannsóknin á hendur honum sé ólögmæt, m.a. af þeim ástæðum að Samkeppniseftirlitið hafi leynt héraðsdóm upplýsingum við beiðni um húsleitarúrskurð hjá Eimskip, að lagaheimildir hafi ekki verið uppfylltar til húsleita, að lagaheimild hafi ekki staðið til þess að rannsaka hin haldlögðu gögn og að rannsókn málsins á hendur honum hafi í reynd verið í höndum starfsmanna Samkeppniseftirlitsins en ekki Héraðssaksóknara, eins og lög áskilja.

Allt þetta eigi að leiða til þess að fella beri rannsóknina niður.

Hér er um að ræða kröfu Gylfa Sigfússonar en Eimskip mun fylgjast grannt með framgangi málsins og meta næstu skref af hálfu félagsins í ljósi þess að margt sem fram kemur í kröfu Gylfa Sigfússonar gæti einnig átt við um félagið sjálft og málið á hendur því.