English Icelandic
Birt: 2019-05-15 18:26:20 CEST
Sýn hf.
Reikningsskil

Sýn hf.: Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 670 milljónir króna

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 15. maí 2019.  

Samruni P/F Hey, dótturfélags Sýnar hf. í Færeyjum og Nema, dótturfélag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórðungnum og er 49,9% hlutur Sýnar hf. í nýju sameinuðu félagi færður samkvæmt hlutdeildaraðferð og því ekki hluti af samstæðureikningsskilum Sýnar hf. frá 1. janúar 2019.  Söluhagnaður nam 817 m.kr.  

Í ársbyrjun var breytt framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis og er hann nú færður meðal óefnislegra eigna í stað birgða. Samanburðartölur á  1F 2018 hafa verið uppfærðar til samræmis við ofangreint. Nýr reikningsskilastaðall IFRS 16 var innleiddur 1. janúar 2019, samanburðartölur 1F 2018 eru ekki uppfærðar. 

· Tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 4.975 m.kr. sem er 1% lækkun á milli ára. 
· EBITDA hagnaður nam 1.260 m.kr. á ársfjórðungnum og jókst um 5% til samanburðar við EBITDA hagnað  1F 2018 sem nam 1.201 m.kr., aðlagaður fyrir breytingu á framsetningu sýningarréttar.  EBITDA hagnaður 1F 2018 aðlagaður fyrir IFRS 16 nam 1.326 m.kr.
· Einskiptiskostnaður vegna starfsloka stjórnenda námu 137 m.kr. á 1F 2019 til samanburðar nam einskiptiskostnaður á 1F 2018 115 m.kr.
· Hagnaður á ársfjórðungnum nam 670 m.kr. sem er 619 m.kr. hækkun á milli ára. · Hagnaður á hlut á 1F 2019 var 2,26.
· Heildarfjárfestingar félagsins námu 1.034 m.kr. þar af námu rekstrarfjárfestingar  616 m.kr. 
· Fyrirliggjandi EBITDA horfur eru óbreyttar á bilinu 6,0-6,5 ma.kr. og heildarfjárfestingar á bilinu 3,8-4,2 ma.kr.   


 Heiðar Guðjónsson, forstjóri: 

"Framkvæmdastjórn félagsins hefur gjörbreyst á þessu ári.  Ný framkvæmdastjórn verður fullmönnuð við lok þessa mánaðar þar sem fjórir framkvæmdastjórar af fimm eru nýir.  Þeir sem koma núna inn í framkvæmdastjórn hafa unnið áður sem ráðgjafar fyrir félagið og þekkja það vel sem gerir það að verkum að þeir þurfa ekki tíma til aðlögunar.  Ég tel félagið einstaklega heppið með samsetningu hinnar nýju framkvæmdastjórnar og hlakka til að taka slaginn á markaði með þessum úrvalshópi. Félagið mun klára stefnumótun og skerpa á rekstrinum strax í júní.  Við ætlum að veita viðskiptavinum okkur úrvals þjónustu og vera í fararbroddi með nýjungar,  Vegna árstíðarsveiflu í rekstri verða næstu fjórðungar ársins betri.  Við erum enn vissari um að horfur ársins náist og horfum björtum augum fram á við" segir Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar. 


Arshlutareikningur 1F.pdf
Fjarfestakynning 1F.pdf
Frettatilkynning 1F.pdf