Icelandic
Birt: 2019-04-23 18:37:46 CEST
Síminn hf.
Fjárhagsdagatal

Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2019 verður birt eftir lokun markaðar 30. apríl 2019

Kynningarfundur verður haldinn 2. maí kl. 8:30

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 eftir lokun markaðar þann 30. apríl næstkomandi.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 2. maí 2019 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8642811/player