English Icelandic
Birt: 2019-04-12 20:18:03 CEST
Arion banki hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Bankastjóri Arion banka segir starfi sínu lausu

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Stjórn bankans og Höskuldur hafa komist að samkomulagi um að hann sinni starfi bankastjóra fram til næstu mánaðarmóta.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Nú eru um níu ár síðan ég kom til starfa hjá bankanum. Óhætt er að segja að verkefnin hafi verið fjölbreytt á þessum árum. Fyrstu árin fólst verkefnið fyrst og fremst í að takast á við skuldavanda viðskiptavina bankans, bæði fyrirtækja og heimila. Þá var hlutfall vandræðalána hjá bankanum vel yfir 50% en er í dag í takt við það sem best gerist hjá fjármálafyrirtækjum í löndunum í kringum okkur. Við tók uppbygging bankans og Arion banki er í dag með skýra framtíðarsýn, öflugan mannauð og í forystu hér á landi þegar kemur að þróun fjármálaþjónustu. Eftir vel heppnað alþjóðlegt hlutafjárútboð á síðasta ári var bankinn skráður á markað í kauphallir á Íslandi og í Svíþjóð og er eignarhald bankans í dag vel dreift og hluthafar bæði innlendir og erlendir fjárfestar. Bankinn er fjárhagslega sterkur með traustan grunnrekstur og vel í stakk búinn fyrir það sem framtíðin ber í skauti sér. Ég tel þetta vera rétta tímann til að fela öðrum að taka við keflinu.“

Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður Arion banka:

„Ég vil þakka Höskuldi fyrir hans mikilvæga þátt í þróun og uppbyggingu Arion banka á síðustu níu árum. Hans forysta og staðfesta hafa reynst bankanum vel í gegnum ýmsar áskoranir á þeim árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn. Við í stjórn bankans virðum hans ákvörðun um að nú sé góður tímapunktur til að láta af störfum. Höskuldur skilar góðu búi þar sem bankinn nýtur sterkrar stöðu á þeim mörkuðum sem hann starfar á. Fyrir hönd stjórnar bankans þakka ég Höskuldi mikilvægt framlag í þágu bankans.“

Nánari upplýsingar veita Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 856 6760, og Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.


Arion banka ber að birta þessar upplýsingar í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins nr. 596/2014.