English Icelandic
Birt: 2019-04-03 17:33:26 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Samningaviðræður í tengslum við söluferli á Icelandair Hotels

Icelandair Group, hefur ákveðið að ganga til lokasamningaviðræðna um sölu á dótturfélagi sínu, Icelandair Hotels og tengdum fasteignum.

Viðræður aðila byggjast á viljayfirlýsingu, sem hefur verið undirrituð af aðilum, um helstu skilmála viðskipta og gert er ráð fyrir því að Icelandair Group muni eiga 20% hlut í hinum seldu eignum. Nánar verð gert grein fyrir væntum kaupanda og fyrirhuguðum viðskiptum ef aðilar ná saman um kaupsamning. Aðilar stefna að því að viðskiptin eigi sér stað við lok annars ársfjórðungs 2019.

Nánari upplýsingar: Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group:  email: iris@icelandairgroup.is