Icelandic
Birt: 2019-03-29 20:51:00 CET
Brim hf.
Niðurstöður hluthafafundar

HB Grandi hf – Niðurstöður aðalfundar haldinn 29. mars 2019

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 29. mars 2019 samþykkir að greidd verði 1,0 kr. á hlut í arð vegna ársins 2018, alls að fjárhæð 1.813.658.723 kr. Arðurinn verður greiddur 30. apríl 2019. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 29. mars 2019 og arðleysisdagur því 1. apríl 2019.

Arðsréttindadagur er 2. apríl 2019, arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá í lok arðsréttindadags.

Meðfylgjandi tillaga að starfskjarastefnu var samþykkt

Sjá viðhengi

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 292.125 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður fái tvöfaldan hlut.

Kjör stjórnar

Sjálfkjörið var í stjórn félagsins
Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Eggert Benedikt Guðmundsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson

Á fysta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir:
Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar Anna G. Sverrisdóttir

Endurskoðunarnefnd:
Eggert Benedikt Guðmundsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Gunnar Ásgeirsson

Starfskjaranefnd:
Magnús Gústafsson formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir

        
Kosning endurskoðanda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2019 verði Deloitte ehf.

Eftirfarandi tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum var samþykkt

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins, og dótturfélaga þess, fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Slík kaup eru þó heimil ef þau eru gerð á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr.  og 2. mgr. 119. gr. laga  um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118. og 131. gr. sömu laga. Heimild þessi skal einungis nýtt í lögmætum tilgangi, í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

Tillaga að breytingu á samþykktum, tilnefningarnefnd

Samþykkt var að fresta tillögu stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins vegna tilnefningarnefndar um eitt ár, eða til næsta aðalfundar. Samþykkt var að stjórn félagsins leggi fram skýrslu til hluthafa um starfsemi tilnefningarnefnda og reynslu annara hlutafélaga af starfsemi slíkra nefnda. Sú skýrsla verði birt hluthöfum fyrir næsta aðalfund.

Viðhengi


HB Grandi - starfskjarastefna.pdf