English Icelandic
Birt: 2019-03-22 10:29:59 CET
NASDAQ Iceland hf.
Markaðstilkynningar

Hlutabréf Icelandair Group hf. (auðkenni: ICEAIR) hljóta athugunarmerkingu

Hlutabréf Icelandair Group hf. (auðkenni: ICEAIR) hafa hlotið athugunarmerkingu með tilvísun í tilkynningu Icelandair Group hf. sem birtist þann 21. mars 2019 kl. 22:16:22 CET, þar sem fram kemur að Icelandair Group hafi samþykkt að hefja viðræður við WOW air hf. um aðkomu að rekstri WOW air hf.

Athugunarmerkingin er framkvæmd með vísan til ákvæðis 8.2 í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga. Í ákvæðinu kemur fram að Kauphöllin geti ákveðið að athugunarmerkja fjármálagerninga viðkomandi útgefanda tímabundið ef aðstæður eru fyrir hendi sem leiða af sér umtalsverða óvissu varðandi útgefandann eða verðmyndun fjármálagerninganna.