English Icelandic
Birt: 2019-03-19 15:06:05 CET
Arion banki hf.
Boðun hluthafafundar

Arion banki – frambjóðandi til stjórnar dregur framboð sitt til baka

Arion banka hf. hefur borist tilkynning frá Paul Richard Horner frambjóðanda til stjórnar þar sem fram kemur að hann dragi framboð sitt til stjórnar til baka vegna samningsskuldbindinga, sem komu upp eftir auglýsingu framboða. Samkvæmt samþykktum bankans skal stjórn bankans skipuð fimm til átta einstaklingum. Sex frambjóðendur verða því í framboði til stjórnar á aðalfundi bankans 20. mars 2019. Fyrirhugað er að halda hluthafafund síðar á árinu þar sem fjölgað verði í stjórn um einn stjórnarmann. Gert er ráð fyrir að Paul Richard Horner muni bjóða sig fram til stjórnar bankans á þeim fundi.