Icelandic
Birt: 2019-03-19 10:32:56 CET
Síminn hf.
Boðun hluthafafundar

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og tilnefninganefndar

Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019 kl. 10:00 að Nauthól við Nauthólsvík, 101 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar og í tilnefningarnefnd í Símanum hf. rann út þann 16. mars síðastliðinn kl. 10:00.


Framboð til stjórnar
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga.

  • Bertrand B. Kan
  • Bjarni Þorvarðarson
  • Helga Valfells
  • Ksenia Nekrasova
  • Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Samkvæmt samþykktum félagsins eru fimm í stjórn og er því sjálfkjörið í stjórn félagsins.


Framboð til tilnefningarnefndar
Í samræmi við starfsreglur tilnefninganefndar Símans hf. skulu tveir nefndarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í tilnefninganefnd félagsins.

  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir

Er því sjálfkjörið í tilnefningarnefnd félagsins. 

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna á heimasíðu félagsins.