Icelandic
Birt: 2019-03-19 10:18:30 CET
Sýn hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Sýn hf. : Breytingar á yfirstjórn

Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Sýnar hefur ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri fyrirtækisins frá og með 1. júní 2019. Hrönn hefur starfað hjá Sýn frá árinu 2005 sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Hrönn hefur borið ábyrgð á fjármálum, mannauðsmálum og miðlægum rekstri félagsins og meðal annars tekið þátt í að leiða félagið í gegnum miklar breytingar, þ.m.t. skráningu í Kauphöll, nú nýverið samruna við 365 sem og innleiðingu á "BESTA" starfsmannaumhverfi að Suðurlandsbraut 8-10, hugmyndafræði sem Vodafone Group hefur innleitt víðsvegar um heiminn.

Hrönn er þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og mikilvægt framlag í gegnum árin.