Reginn hf.: Kannanir og staðfestingar staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna REG290547 og REG250948
PwC er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna REG290547 og REG250948. Hlutverk hans er m.a. að kanna og staðfesta útreikninga útgefanda í skýrslum um fjárhagslegar kvaðir. PwC hefur nú framkvæmt kannanir á útreikningum útgefanda á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna REG290547 og REG250948. Niðurstöður kannana PwC staðfesta að skuldabréfaflokkarnir REG290547 og REG250948 standist allar fjárhagslegar kvaðir þann 31.12.2018.
Frekari niðurstöður kannana eru í meðfylgjandi viðhengi.
Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262
|