English Icelandic
Birt: 2019-02-06 10:11:01 CET
Icelandair Group hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar á skipulagi Icelandair Group

  • Enn skýrari áhersla á flugrekstur
  • Samþætting á sölu-, markaðs- og þjónustumálum
  • Aukin áhersla á stafræna þróun
  • Breytingar á framkvæmdastjórn
  • Ákvörðun tekin um að undirbúa sölu á Iceland Travel

Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi Icelandair Group til að ná fram enn skýrari áherslu á kjarnastarfsemi félagsins; flugrekstur. Starfsemin mun skiptast í átta svið sem samanstanda af fjórum kjarnasviðum og fjórum stoðsviðum. Kjarnasviðin verða sölu- og þjónustusvið, flugrekstrarsvið, flugflutningasvið og flugvélaleiga og ráðgjöf. Starfsemi þriggja fyrstu sviðanna snýst að mestu um að hámarka afkomu af alþjóðlegu leiðarkerfi Icelandair en flugvélaleiga og ráðgjöf, starfsemi Loftleiða Icelandic, nýtir þekkingu, reynslu og rekstrarþætti félagsins á arðbæran hátt með því að vinna með flugfélögum víðs vegar í heiminum. Þá munu fjögur stoðsvið vinna þvert á fyrirtækið: fjármálasvið, mannauðssvið, stafræn þróun og upplýsingatækni, sem og flugfloti og leiðarkerfi. Framkvæmdastjórar þessara sviða mynda framkvæmdastjórn Icelandair Group ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra félagsins.

Breytingar á framkvæmdastjórn
Sölu- og markaðssvið og svið þjónustuupplifunar sem rekin hafa verið sem tvö aðskilin svið verða sameinuð í eitt. Birna Ósk Einarsdóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra þjónustuupplifunar, mun leiða sameinað sölu- og þjónustusvið félagsins. Gunnar Már Sigurfinnsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs, situr áfram í framkvæmdastjórn félagsins sem framkvæmdastjóri flutningasviðs.

Tómas Ingason kemur nýr inn í framkvæmdastjórn félagsins og fer fyrir nýju sviði, stafrænni þróun og upplýsingatækni og Eva Sóley Guðbjörnsdóttir sem kemur einnig ný inn í framkvæmdastjórn, eins og fram hefur komið, hefur störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs um miðjan febrúar.

Jafnframt taka Ívar S. Kristinsson, framkvæmdastjóri flotamála og leiðarkerfis félagsins, og Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, sæti í framkvæmdastjórn.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, sem er nú í söluferli, mun við þessa breytingu víkja úr framkvæmdastjórn félagsins. Þá mun Jens Bjarnason framkvæmdastjóri nú einbeita sér að erlendu fjárfestingarverkefni en hann hefur undanfarin tvö ár leitt slíkt verkefni Icelandair Group á Grænhöfðaeyjum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:
„Með þessum breytingum verður áherslan á kjarnastarfsemi félagsins, flugrekstur, enn skýrari. Við náum fram einföldun og hagkvæmni í rekstri, meðal annars á fjármálasviði og gerum félagið betur í stakk búið til að takast á við breytingar í rekstrarumhverfinu og nýta tækifæri til áframhaldandi vaxtar. Aukin áhersla á stafræna þróun, þróun flotans og leiðarkerfisins, sem og flutninga- og leiguflugstarfsemi okkar, mun styrkja samkeppnishæfni félagsins til framtíðar.“

Sameining sölu-, markaðs- og þjónustumála
Birna Ósk mun leiða nýtt, sameinað sölu- og þjónustusvið. Hún hefur stýrt sviði þjónustuupplifunar sem mótað var á síðasta ári út frá einingum af þremur sviðum félagsins sem snúa allar að þróun og sambandinu við viðskiptavini. Sviðið var stofnað með það að markmiði að setja þjónustu við viðskiptavini í öndvegi, en meðal verkefna hafa verið vildarklúbbur, stafræn þróun, stefnumótun og viðskiptaþróun. Þessi breyting reyndist mikilvæg og góður árangur hefur náðst í bættri þjónustu, einföldun vinnulags og skipulagi verkefna. Gunnar Már tók við sölu- og markaðssviði um mitt síðasta ár og hefur unnið mjög gott starf við að styrkja sölu- og markaðsstarf félagsins. Við sameiningu þessara tveggja sviða fer rekstur dreifikerfa af sölu- og markaðssviði og gagnavinnsla og stafræn þróun fer af sviði þjónustuupplifunar en hvort tveggja fer yfir á nýtt svið; stafræna þróun og upplýsingatækni. Við þetta skerpist áhersla nýs sviðs á tækifæri til frekari samþættingar sölu-, markaðs- og þjónustutengdra verkefna. Gunnar Már mun aðstoða Birnu Ósk við áframhaldandi uppbyggingu og samþættingu á næstu vikum. Lögð verður sérstök áhersla að halda góðu sambandi við stærstu viðskiptavini félagsins, ferðaheildsala og fyrirtæki.

Stafræn þróun í forgang
Nýtt svið, stafræn þróun og upplýsingatækni, hefur verið stofnað. Sviðið byggir á þróun síðustu ára hjá félaginu í þá átt að byggja stöðugt á nýjustu tæknilausnum sem í boði eru til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðla að sjálfvirknivæðingu og þar með hagræðingu í rekstri. Fyrir þremur árum var sú stefna sett að Icelandair skyldi vera framúrskarandi meðal flugfélaga í stafrænum lausnum og hefur mikið áunnist síðan þá. Rétt skref í þróunarferlinu nú er að sameina allar einingar sem móta tækniframtíð Icelandair Group undir einum hatti og Tómas Ingason hefur verið ráðinn til að leiða þetta nýja svið. Hann mun hefja störf 1. mars nk.

Áhersla á fraktflutninga
Gunnar Már Sigurfinnsson mun einbeita sér að frekari uppbyggingu á flutningasviði. Hann hefur stýrt Icelandair Cargo um 10 ára skeið og á því tímabili breyttist rekstur félagsins verulega til hins betra. Félagið sér fram á tækifæri til þess að nýta leiðarkerfi Icelandair enn betur í flutningum á frakt. Jafnframt er verið að skoða möguleika á að útvíkka flutningastarfsemi félagsins enn frekar með arðbærum hætti.

Flugvélaleiga og ráðgjöf nýtir rekstrarþætti Icelandair Group
Flugvélaleiga og ráðgjöf verður eitt af kjarnasviðum félagsins sem Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, mun stýra. Loftleiðir Icelandic hefur sinnt ýmsum leiguverkefnum og ýmis konar ráðgjöf við flugrekstraraðila þar sem reynsla, þekking og rekstrarþættir Icelandair Group eru nýttir á arðbæran máta. Þá hefur starfsemi Loftleiða Icelandic stuðlað að minnkun árstíðasveiflu í rekstri félagsins í heild. Rekstur Loftleiða Icelandic hefur gengið mjög vel á undanförnum árum og er markmið félagsins að styrkja hann enn frekar.

Breytingar á fjármálasviði
Dótturfélag Icelandair Group, Fjárvakur, sem sinnt hefur ýmis konar fjármálaþjónustu fyrir Icelandair Group, verður samþætt fjármálasviði félagsins. Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri Fjárvakurs, mun, af eigin ósk, láta af störfum í maí nk. þegar samþættingunni verður lokið. Markmiðið með breytingunni er að einfalda skipulag, stytta boðleiðir og lækka rekstrarkostnað.

Stýring flugflota og leiðakerfis
Flugfloti og leiðarkerfi eru lykilþættir í starfsemi félagsins. Ívar S. Kristinsson, framkvæmdastjóri flotamála og leiðarkerfis Icelandair mun stýra nýju sviði sem ber ábyrgð á framangreindum verkefnum og tekur hann sæti í framkvæmdastjórn.

Aðrar áherslur
Með skýrari áherslu á flugrekstur verður, auk ofangreindra skipulagsbreytinga, unnið að frekari samþættingu Air Iceland Connect og VITA við Icelandair Group. Þá hefur stjórn félagsins tekið ákvörðun um að hefja undirbúning á sölu Iceland Travel.


Upplýsingar um nýja meðlimi framkvæmdastjórnar

Árni Hermannsson hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Lofteiða Icelandic síðan í janúar 2018 eftir að hafa verið fjármálastjóri fyrirtækisins frá árinu 2002. Áður starfaði hann sem fjármálastjóri tæknifyrirtækjanna ANZA og Álits. Hann er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir starfaði sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Advania á Íslandi frá árinu 2015 og sem framkvæmdastjóri þjónustu- og rekstrarsviðs fyrirtækisins frá maí 2018. Áður starfaði hún sem forstöðumaður á fjármálasviði hjá Össuri. Þá hefur hún einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi og fjárfestir en hún hóf starfsferil sinn í fjármálageiranum og starfaði hjá Kaupþingi banka í mörg ár Eva Sóley er verkfræðingur að mennt, með B.Sc. í hagverkfræði og hagfræði sem aukagrein og M.Sc. í fjármálaverkfræði frá Columbia University í New York.

Ívar S. Kristinsson hefur stýrt flugflotamálum Icelandair síðan í maí 2018 en hefur starfað á fjármálasviði Icelandair frá árinu 2010, síðast sem forstöðumaður rekstrarstýringar. Hann var forstöðumaður hjá Promens á árunum 2006-2008 og verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá 2000 til 2005. Ívar er með M.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu í fjármálum frá University of North Carolina, Chapel Hill.

Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýs sviðs, stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Hann var fram­kvæmda­stjóri viðskipta­sviðs WOW air á árinu 2018 og forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka á árunum 2016 til 2018. Hann starfaði einnig hjá WOW air á árinu 2014 sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs. Fyrir þann tíma starfaði hann sem stjórn­un­ar­ráðgjafi hjá Bain & Comp­any í Kaup­manna­höfn og hjá Icelandair þar sem hann var forstöðumaður tekju­stýr­ingar og verðlagn­ingar um árabil. Tóm­as er með MBA gráðu frá MIT Sloan School of Mana­gement í Bost­on, MSc. gráðu í verk­fræði frá MIT með áherslu á flugrekst­ur og aðfanga­keðjur og BS-gráðu í iðnaðar­verk­fræði frá Há­skóla Íslands.

Viðhengi


Organisational Chart Icelandair Group.pdf