Icelandic
Birt: 2019-02-01 18:16:41 CET
Heimstaden hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Heimavellir hf. : Beiðni um hluthafafund (afskráningu) og tilkynning um valfrjálst tilboð

Stjórn Heimavalla barst í dag erindi frá þremur hluthöfum þar sem farið er fram á við stjórn félagsins að hún boði til hluthafafundar þar sem tillaga verður gerð um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum hjá NASDAQ Iceland hf. eða að slík tillaga verði sett á dagskrá aðalfundar þann 14.mars 2019.

Að auki komu fram upplýsingar um valfrjálst tilboð í hlutabréf Heimavalla hf. sem lagt verður fram í samræmi við ákvæði X. kafla laga um verðbréfaviðskipti.

Stjórn Heimavalla mun taka ofangeint erindi til afgreiðslu á næstu dögum í samræmi við 85. gr. l. nr. 2/1995 um hlutafélög.

Meðfylgjandi er tilkynning sem barst með erindi hluthafanna. 

Nánari upplýsingar veitir:

Erlendur Magnússon, stjórnarformaður

s:860-3355


Viðhengi


20190201 Tilkynning i Kaupholl - Artica Finance.pdf