Icelandic
Birt: 2019-01-30 18:25:59 CET
Hagar hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Hagar hf. árshlutauppgjör Q3 // mars 2018 – nóvember 2018

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2018/19 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. janúar 2019. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2018 til 30. nóvember 2018. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Rekstrarreikningur Olíuverzlunar Íslands ehf. og DGV ehf. er ekki hluti af árshlutareikningnum en yfirtökudagur var 30. nóvember 2018. Áhrif samrunans á rekstur samstæðunnar munu því ekki koma fram fyrr en á fjórða ársfjórðungi. Efnahagsreikningur félaganna er hins vegar hluti af árshlutareikningnum. Samanburðarfjárhæðum hefur ekki verið breytt.

Helstu upplýsingar á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins:

  • Hagnaður tímabilsins nam 1.764 millj. kr. eða 3,1% af veltu.
  • Hagnaður á hlut var 1,60 kr.
  • Vörusala tímabilsins nam 56.255 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,1%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 3.110 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 52.737 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 773 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 23.726 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 45,0% í lok tímabilsins.

Rekstrarafkoma tímabilsins
Vörusala tímabilsins nam 56.255 milljónum króna, samanborið við 54.084 milljónir króna árið áður. Söluaukning tímabilsins milli ára í krónum talið er 4,0%. Í matvöruverslanahluta félagsins hafa seld stykki aukist um 1,0% og viðskiptavinum hefur fjölgað um 1,6% milli ára. Níu mánaða meðaltal vísitölu neysluverðs milli rekstrarára hefur hækkað um 2,65% en hækkun vísitölunnar án húsnæðis var 1,04%. Vísitala innkaupa í erlendum gjaldmiðlum, þar sem vegnar eru innkaupamyntir Haga, sýnir veikingu íslensku krónunnar, eða um 5,2% á samanburðartímabilinu.

Framlegð félagsins var 13.552 milljónir króna, samanborið við 13.393 milljónir króna árið áður eða 24,1% framlegð samanborið við 24,8% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 238 milljónir króna eða 2,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið lækkar úr 19,2% í 18,8%. Á tímabilinu eru gjaldfærðar 236 milljónir króna í einskiptiskostnað vegna kaupa félagsins á Olís og DGV en á sama tímabili á fyrra ári nam gjaldfærslan 26 milljónum króna. Þá var einnig gjaldfært á tímabilinu 50 milljónir króna vegna tapaðra viðskiptakrafna í heildsöluhluta félagsins.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 3.110 milljónum króna, samanborið við 3.272 milljónir króna árið áður. EBITDA-hlutfall var 5,5%, samanborið við 6,0% árið áður.

Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 1.764 milljónum króna, sem jafngildir 3,1% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.933 milljónir eða 3,6% af veltu.

Efnahagsreikningur og sjóðstreymi tímabilsins
Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 52.737 milljónum króna. Fastafjármunir voru 34.279 milljónir króna og veltufjármunir 18.458 milljónir króna. Þar af eru birgðir 8.728 milljónir króna.

Eigið fé félagsins var 23.726 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 45,0%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 29.011 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 7.137 milljónir króna. Stór hluti vaxtaberandi skulda er á gjalddaga í október 2019 og eru því 8.890 milljónir króna á meðal skammtímaskulda í árshlutareikningnum, en þar á meðal er fjármögnun vegna samrunans, sem var til skamms tíma. Unnið er að endurfjármögnun samstæðunnar.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.676 milljónum króna, samanborið við 1.453 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 5.784 milljónir króna en þar af voru 4.967 milljónir króna vegna kaupa félagsins á Olís og DGV. Fjármögnunarhreyfingar voru 4.659 milljónir króna en þar af voru 5.282 milljónir króna vegna skammtímafjármögnunar í tengslum við samrunann. Handbært fé í lok tímabilsins var 773 milljónir króna, samanborið við 232 milljónir króna árið áður.

Staðan og framtíðarhorfur
Þann 7. janúar sl. var tilkynnt um breytta afkomuspá félagsins en EBITDA áætlun fyrir rekstrarárið er nú 4.600-4.700 milljónir króna, að undanskildum kostnaði við samruna og einskiptiskostnað og án tekjuáhrifa frá Olís og DGV. Þá hefur fjárfestingaráætlun einnig verið lækkuð og er hún nú 1.200-1.400 milljónir króna. Líkt og rakið var í fyrrnefndri tilkynningu eru helstu ástæður fyrir lægri afkomuspá gengisfall íslensku krónunnar, seinkun á opnun nýrrar Bónusverslunar í Skeifunni og flutningi á verslun Bónus í Mosfellsbæ, ásamt lokun og sölu þriggja Bónusverslana skv. sátt félagsins við Samkeppniseftirlitið.

Fyrir liggur endurskoðaður efnahagsreikningur Olís fyrir fyrstu 11 mánuði ársins 2018. EBITDA félagsins ásamt EBITDA afkomu DGV fyrir tímabilið er 2.274 milljónir króna. Rekstrarári Olís og DGV verður breytt til samræmis við rekstrarár Haga, þ.e. tímabilið frá 1. mars til febrúarloka ár hvert. Ársreikningar félaganna fyrir árið 2018 verða því 14 mánuðir. Eins og áður segir verða rekstrarreikningar Olís og DGV hluti af samstæðu Haga frá og með 1. desember 2018 en efnahagsreikningur félaganna er hluti af reikningsskilunum 30. nóvember 2018.

Afhending þeirra eigna sem Högum og Olís bar að selja skv. sáttinni hefst 1. febrúar nk. þegar verslun Bónus á Hallveigarstíg verður afhent. Eignirnar verða svo afhentar hver af annarri en gera má ráð fyrir að afhendingu eigna sem Högum bar að selja verði lokið í mars en afhendingu eigna Olís í apríl. Söluandvirðið er greitt við afhendingu fyrstu eignar og því munu þær eignir sem Hagar selja hafa áhrif á sjóðstreymi þess rekstrarárs sem nú er að ljúka en áhrifin af sölu eigna Olís koma ekki fram í sjóðstreymi fyrr en á nýju rekstrarári.

Í apríl nk. rennur út leigusamningur Hagkaups í Borgarnesi en þar hefur verið starfrækt sérvöruverslun sl. 12 ár. Leigusamningurinn verður ekki endurnýjaður og mun verslunin loka.

Höfuðstöðvar Olís munu á sumarmánuðum flytja frá Katrínartúni 2 í Skútuvog 5. Skútuvogur 5 er í eigu Haga. Árleg áhrif á samstæðureikning félagsins verða um 110 milljónir króna frá og með september 2019 að telja.

Fjárfestakynning 8. mars 2019
Þann 8. mars nk. mun félagið halda kynningu fyrir hluthafa og markaðsaðila, þar sem farið verður m.a. yfir stöðu samrunaverkefna.

Nú þegar samruni Haga og Olís hefur verið heimilaður er hafin vinna við samrunaverkefni með það að markmiði að auka samkeppnishæfni hins sameinaða félags og að bæta vöru- og þjónustuframboð til viðskiptavina félagsins. Forgangur samrunaverkefna snýr að fjármögnun félagsins, húsnæðismálum, vöruhúsamálum, innkaupum, vöruframboði og þjónustu við viðskiptavini, þróunarverkefnum og auk þess hagræðingu á ýmsum sviðum.

Fjárhagsdagatal 2018/19

4. ársfjórðungur (1. mars – 28. febrúar): 16. maí 2019
Aðalfundur 2019: 7. júní 2019

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.

Viðhengi


Frettatilkynning Hagar arshlutareikningur 301118.pdf
Hagar Arshlutareikningur 30 11 2018 isl.pdf